Ráðstefnan" Fjölbreytt ásýnd skjalastjórnar"er haldin á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2. Ráðstefnan hefst á erindum sem öll tengjast skjalastjórn með ólíkum hætti. Eftir hádegi fá ráðstefnugestir tækifæri til að taka þátt í umræðum í svokölluðu opnu rými. Sjá nánari útskýringu á opnu rými hér
Fundarstjóri er Kristjana N. Jónsdóttir ráðgjafi hjá Azazo.
Upplýsingar um skráningu á ráðstefnuna má finna hér
Dagskrá
kl. 08:30 - Skráning.
kl. 09:00 - Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, flytur ávarp.
kl. 09:10 - Kristjana N. Jónsdóttir kynnir rafræn skil í framkvæmd. 360 gráðu umfjöllun um rafræn skil hjá öllum þeim sem hafa með þau að gera.
kl. 09:15 - S. Andrea Ásgeirsdóttir, skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands.
„Varðveisla rafrænna mála- og skjalavörslukerfa"
kl. 09:35 - Lísa Björg Ingvarsdóttir, viðskiptastjóri hjá Hugviti.
„GoPro-Veigamikill þáttur í rafrænum skilum"
kl. 09:55- Guðrún Birna Guðmundsdóttir, skjalastjóri hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
„Rafræn skil – Hvernig gerir maður þetta? Sjónarhorn skjalastjórans"
kl. 10:10 - Kaffihlé
kl. 10:40 - Eiríkur G. Guðmundsson, þjóðskjalavörður.
„Lög um opinber skjalasöfn og reynslan af þeim"
kl. 11:05 - Daldís Ýr Guðmundsdóttir, sérfræðingur í skjalastjórn hjá Landsbankanum.
„The Principles – Sverð og skjöldur skjalastjórans: Skref fyrir skref í átt að árangursríkri upplýsingastjórnun.
Þroskamódel ARMA international notað til að meta stöðu skipulagsheilda.
kl. 11:30 - Ingigerður Guðmundsdóttir, gæða- og öryggisstjóri hjá Sjóvá.
„Tengsl gæðastjórnunar, skjalastjórnar og straumlínustjórnunar"
kl. 11:55 - Hádegisverður á Vox
kl. 12:55 - Hvað liggur þér á hjarta?
Laufey Ása Bjarnadóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Azazo.
„Opið rými – Open Space Technology"
kl. 15:00 - Léttar veitingar í Vox Lounge
kl. 15:20 - Ari Eldjárn skemmtir ráðstefnugestum