Fræðslufundurinn á morgun verður haldinn í bíósal Icelandair Hotels Natura (áður Hótel Loftleiðir). Inngangurinn er í suðurenda hótelsins.
Fræðslufundurinn á morgun verður haldinn í bíósal Icelandair Hotels Natura (áður Hótel Loftleiðir). Inngangurinn er í suðurenda hótelsins.
Skráning er hafin á jólafund félagsins sem verður haldinn 22. nóvember næstkomandi.
Það er augljóst að fyrirlesturinn hennar Svölu Rúnar leggst vel í fólk. Búið er að útvega stærri sal þannig að það geta allir félagsmenn komið sem vilja. Endilega skráið ykkur hér á síðunni.
Laugardaginn 10. nóvember er Norræni skjaladagurinn.
Það verður fjölbreytt dagskrá á ýmsum skjalasöfnum í tilefni dagsins. Upplýsingar um dagskrána má finna á heimasíðu skjaladagsins: skjaladagur.is- dagskrá.
Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldum árið 2012-2013 hafa verið sendir út. Árgjaldið er kr. 3500. Ef þú hefur ekki fengið greiðsluseðil og telur þig vera félaga vinsamlega hafðu samband. Ef þú ert ekki félagi en hefur áhuga á félagsaðild getur þú skráð þið hér á síðunni: Nýskráning