Fræðslufundur 11. febrúar 2014 - Frumvarp um lög um opinber skjalasöfn
Skráning á fræðslufundinn
Með bestu kveðju,
Stjórnin
Heillaóskir frá Þjóðskjalasafni Íslands á 25 ára afmæli Félags um skjalastjórn
Ágætu félagsmenn í Félagi um skjalastjórn
Fyrir hönd Þjóðskjalasafns Íslands óska ég ykkur innilega til hamingju með 25 ára afmæli félags ykkar.
Stofnun Félags um skjalastjórn árið 1988 var vitnisburður um framsækni félagsmanna og metnaðarfullan hug þeirra til nýrrar og vaxandi starfsgreinar í dögun nýrra tíma. Nú á 25 ára afmælinu blómstrar félagsstarfið sem aldrei fyrr.
Lög um Þjóðskjalasafn Íslands árið 1985, stjórnsýslulög árið 1993 og upplýsingalög árið 1996 hafa undirstrikað mikilvægi góðrar skjalastjórnar. Það hefur verið Þjóðskjalasafni Íslands afar mikilvægt að eiga samstarf í öflugt félag ykkar og að vinna með ykkur að því sameiginlega markmiði að efla þekkingu og skilning á skjalastjórn og skjalavörslu í samfélaginu.
Það er von mín að Félag um skjalastjórn muni vaxa og dafna í framtíðinni og að samstarf Þjóðskjalasafns Íslands við félagið og félagsmenn verði áfram farsælt og árangursríkt.
Með alúðarkveðjum og óskum um gleðileg jól,
Eiríkur G. Guðmundsson
þjóðskjalavörður
Afmælisnefndin vill þakka þeim sem voru á afmælisráðstefnunni kærlega fyrir samveruna. Við erum mjög ánægð með hvað andrúmsloftið var jákvætt, umræður góðar á „spjallborðunum“ og fyrirlestrarnir áhugaverðir Það er nokkur vinna að fara yfir punktana sem komu fram á „spjallborðunum“ en við munum koma efninu eins fljótt og hægt er á vefsíðuna. Glærur og annað efni sem var afhent á fundinum mun einnig birtast á vefsíðunnu fljótlega.
Félag um skjalastjórn
Afmælisnefnd.