Upplýsingastjórn í ljósi nýrra persónuverndarlaga
Námskeið 4. apríl 2018 kl. 8:30 til 12:45.
Staðsetning: Landsnet, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Verð: 8.000 fyrir félagsmenn í Félagi um skjalastjórn, 10.000 fyrir aðra.
Skráning fer fram hér: https://goo.gl/forms/zix0FkdrB54bsyCu2 Skráningu lýkur á miðnætti 28. mars.
Lýsing: Námskeið um nýja persónuverndarlöggjöf og hvernig hún hefur áhrif á störf skjalastjóra. Námskeiðið er miðað að þörfum bæði opinbera og einkageirans og er haldið sameiginlega af Þjóðskjalasafni Íslands og Félagi um skjalastjórn.
Dagskrá
- Áslaug Björgvinsdóttir, lögfræðingur hjá Logos. Ný persónuverndarlög - lögmæti vinnslu og aukinn réttur einstaklinga.
- Ásgerður Kjartansdóttir, skjalastjóri hjá Landsneti. Hvernig innleiðum við persónuverndarlögin inn í skjala- og upplýsingastjórn fyrirtækja – hverju þarf að breyta í verklagi?
- Þorgerður Magnúsdóttir, skjalastjóri hjá Sjóvá. Aðkoma skjalastjóra að gerð vinnsluskrár og önnur verkefni tengd innleiðingu á nýjum lögum.
- Árni Jóhannsson, skjalavörður hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Skjalavistunaráætlun og samþætting við vinnsluskrá.
- Hádegismatur og netagerð.