Heil og sæl
Aðalfundur félags um skjalastjórn verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl klukkan 17:00 í húsnæði Sjóvár Kringlunni 5, 103 Reykjavík.
Óskir um lagabreytingar skulu berast í síðasta lagi 15. apríl á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Okkur vantar nýtt fólk í stjórn og nefndir félagsins, endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á að ganga til liðs við okkur á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Dagskrá:
· Þorgerður Magnúsdóttir mun taka á móti okkur og fræða okkur um skjalastjórn Sjóvár. Að því loknu taka við hefðbundin aðalfundastörf.
· Hefðbundin aðalfundarstörf:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins bornir upp til samþykktar.
3. Árgjald ákveðið.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar og varamanns.
6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
Önnur mál.
· Félag um skjalastjórn heiðrar Kristínu Geirsdóttur og Ragnhildi Bragadóttur tvo stofnfélaga félagsins.
· Léttar veitingar í boði félagsins, endilega skráið ykkur svo hægt sé að áætla magn veitinga.Bestu kveðjur,
Stjórn félags um skjalastjórn