Í ritnefnd Félags um skjalastjórn starfsárið 2007 til 2008, störfuðu sömu aðilar og árið þar á undan, Anna María Sigurðardóttir, Kristianna Jessen og Sæunn Ólafsdóttir. Sæunn og Kristianna höfðu umsjón með fréttaöflun, en Anna María sá um umbrot og útlitshönnun.

Ritnefndin hittist tvisvar sinnum fyrir áramótin og var efni í fréttabréf nánast tilbúið þá en vegna anna í vinnu og einkalífi tókst ekki að leggja lokahönd á verkið fyrr en í febrúar. Þá var reyndar ákveðið að hætta útgáfu fréttabréfsins sem slíks og birta greinarnar þess í stað á heimasíðu félagsins, www.irma.is.  35. tölublað fréttabréfs Félags um skjalastjórnun leit því aldrei dagsins ljós heldur eru þær greinar sem safnað hafði verið af ritnefndinni þetta starfsárið birtar á heimasíðu félagsins.

Copyright © 2016 IRMA. All Rights Reserved. Hönnuð af Davið og Golíat.

Félag um skjalastjórn kt. 580189-2029 Pósthólf 8731, 128 Reykjavík