Aðalfundur Félags um skjalastjórn var haldinn fimmtudaginn 4. maí sl. Eftirfarandi voru kjörnir í stjórn á aðalfundi félagsins:

Inga Dís Karlsdóttir, formaður

Kristín Ósk Hlynsdóttir, varaformaður

Bryndís Steinsson, gjaldkeri

Edda Rúna Kristjánsdóttir, meðstjórnandi,

Arna M. Eggertsdóttir, ritari

Magnea Davíðsdóttir, varamaður.

Alma Sigurðardóttir lét af embætti gjaldkera, en við embættinu tók Bryndís Steinsson. Bryndís gegndi embætti varamanns í stjórn síðasta starfsárs. Magnea Davíðsdóttir er ný í stjórn félagsins og tekur við sem varamaður í stað Bryndísar. Önnur embætti eru óbreytt frá síðasta starfsári.

Aðalfundurinn var ágætlega sóttur, en að loknum aðalfundarstörfum var boðið upp á veitingar en auk þess hélt Steinunn I. Stefánsdóttir erindið "að selja skjalastjórn" sem vakti mikla lukku á meðal viðstaddra.

Copyright © 2016 IRMA. All Rights Reserved. Hönnuð af Davið og Golíat.

Félag um skjalastjórn kt. 580189-2029 Pósthólf 8731, 128 Reykjavík